Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
default
Dæluskipið Sebastiano Caboto við dýpkun innsiglingarrennunnar í Vestmannaeyjahöfn. Fjarlægja á um 50 þúsund rúmmetra af efni áður en ráðist verður í styttingu Hörgaeyrargarðs. Mynd: Halldór B. Halldórsson.

Unnið er að dýpkun og breikkun innsiglingarrennunnar í Vestmannaeyjahöfn. Efnið sem tekið er upp er losað í stæði fyrirhugaðs hafnargarðs utan við Eiðið og þjónar framkvæmdin þannig tveimur hafnarverkefnum. Halldór B. Halldórsson sendi Eyjafréttum meðfylgjandi myndband frá dýpkuninni.

Í frétt Vestmannaeyjabæjar í morgun kemur fram að fjarlægja eigi um 50 þúsund rúmmetra af efni úr innsiglingarrennunni og breikka hana. Dýpkunin er hluti verkefnisins við styttingu Hörgaeyrargarðs.

Dæluskipið Sebastiano Caboto, sem er á vegum belgíska fyrirtækisins Jan De Nul, annast dýpkunina. Þegar henni lýkur verður farið í verðkönnun á styttingu garðsins og síðan hafist handa við að stytta hann um allt að 40 metra.

Uppbygging utan við Eiðið

Efnið úr innsiglingunni er losað utan við Eiðið, þar sem nýr hafnargarður er fyrirhugaður. Í frétt bæjarins er þetta sagt stórt skref í verkefninu um hafnaraðstöðu utan við Eiðið.

Þar sem skipið losar farminn í fyrirhuguðu garðstæði telur bærinn að segja megi að uppbygging þar sé hafin, samhliða framkvæmdunum við innsiglinguna.

Myndband Halldórs frá dýpkuninni má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.