Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út á hæsta forgangi, F1, í gærkvöldi vegna sjúkraflutnings frá Vestmannaeyjum. Flytja þurfti sjúkling til Reykjavíkur en þyrla Landhelgisgæslunnar gat ekki lent í Eyjum vegna þoku.
Þetta kemur fram í færslu björgunarfélagsins á Facebook. Þar segir að vakthafandi læknir í Eyjum hafi óskað eftir að sjúklingurinn yrði fluttur með björgunarskipinu Þór til Landeyjahafnar. Þaðan var haldið áfram með sjúkrabíl til Reykjavíkur.
Útkallið gekk hratt fyrir sig og var Þór kominn til Landeyjahafnar 30 mínútum eftir boðun.
Í færslunni þakkar Björgunarfélag Vestmannaeyja áhöfninni skjót viðbrögð og samstarfsaðilum gott samstarf. Félagið sendir jafnframt sjúklingnum og aðstandendum hans hlýjar kveðjur og óskar honum skjóts og góðs bata.