Ekkert leyfi komið til byggingar smábátaaðstöðu í Land-Eyjahöfn

Vegna fréttar um að leyfi hafi fengist til að Vestmannaeyjabæjar byggði aðstöðu fyrir smábáta í Land-Eyjahöfn, vill Siglingastofnun taka fram, að slíkt leyfi er ekki fyrir hendi. Menn einhendi sér þessa dagana í að klára ferjulægið, til að hægt verði að taka höfnina í notkun 21. júlí næstkomandi. Það sé forgangsatriði. (meira…)
Ribsafari hættir siglingum í Landeyjahöfn til 22. júlí

Vegna fréttar í Ríkisútvarpinu í gær hafa forsvarsmenn Ribsafari í Vestmannaeyjum ákveðið að hætta siglingum í Landeyjahöfn til 22. júlí eða degi eftir að Herjólfur hefur siglingar í höfnina. Þeir segjast sýna því skilning að höfnin sé vinnusvæði. Forstöðumaður hafnasviðs Siglingastofnunar sagði í útvarpsfréttum í gær að síaukin umferð um Landeyjahöfn, bæði á sjó og […]
Vestmannaeyjabær setur upp smábátaaðstöðu í Landeyjahöfn

Vestmannaeyjabær hefur nú fengið heimild til að koma upp aðstöðu fyrir smábáta í Landeyjahöfn. Ekki var fyrirhuguð aðstaða fyrir smábáta í höfninni sem opnar 21. júlí en Vestmannaeyjabær leggur til bryggju og landgang og greiðir fyrir frágang. Aðstaðan er því eign Vestmannaeyjabæjar og lítur stjórn bæjarins. Bryggjan er hugsuð sem neyðarbryggja fyrir smábáta og skemmtibáta, […]
Norður-Írarnir muna vel eftir Friðfinni og ÍBV

KR lék á dögunum gegn norður-írska liðinu Glentoran í Evrópukeppninni. KR hafði betur 3:0 en þetta er ekki í fyrsta sinn sem norður-írska félagið kemur til Íslands. Valur tók á móti liðinu 1977 og þá hafði Glentoran betur en ári seinni mætti Glentoran liði ÍBV. Og viðureignin var skrautlega svo ekki verði meira sagt. (meira…)
Makríll orðinn uppistaðan í veiðum og vinnslu í Eyjum

Þrjú skip lönduðu makríl í Eyjum í gærkvöldi og nótt, en makríll, sem var nær óþekktur fiskur hér við land fyrir nokkrum árum, er orðinn uppistaðan í veiðum og vinnslu Vestmannaeyinga. Þar eru nú fimm stórir bátar og þrír frystitogarar gerðir út á makríl og þrjú togskip bætast við eftir nokkra daga. Unnið er á […]
Tveir kærðir fyrir meintan akstur undir áhrifum fíkniefna

Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið enda töluverður fjöldi fólks í bænum í tengslum við Goslokahátíðina. Var Lögregla með mikið eftirlit vegna þess. Var nokkur ölvun meðal gesta Goslokahátíðarinnar og þurfti Lögregla að aðstoða nokkra sökum þess hversu ölvaðir þeir voru. Þá fengu þrír aðilar á sig kæru fyrir […]
Umferð um Landeyjahöfn bönnuð

Mikil umferð smærri báta hefur verið um Landeyjahöfn undanfarið og leggja jafnframt margir leið sína að höfninni landmegin á bílum. Fólk á öllum aldri, jafnvel mæður með smábörn og mjög roskið fólk hefur sést þar klifrandi í grjótgörðunum innan um stórvirkar vinnuvélar. Engar slysavarnir eru til staðar í höfninni og því skapa óþarfa ferðalög almennings […]
Einkennileg tímasetning á bikarleik hjá stelpunum

Það er óhætt að segja að tímasetningin á leik ÍBV og Hauka í 8-liða úrslitum Visabikars kvenna vekji athygli enda hefst leikurinn klukkan 16:00 á föstudag. Flestir eiga von á hörkuleik enda þótt Haukar leiki í úrvalsdeild og ÍBV í 1. deild, þá er munurinn ekki mikill á liðunum. Sem dæmi léku liðin tvo leiki […]
�?rjú sæti laus á miðvikudeginum til Eyja með Herjólfi

Ekkert lát virðist vera á bókanir í Herjólf fyrir Þjóðhátíðina. Nú er einungis eitt sæti laust í 9.30 ferðina og tvö sæti laus í 12.30 ferðina. Alls verða farnar fjórar ferðir þann daginn en fyrir er uppselt í hinar tvær sama dag auk þess sem allt er uppselt fimmtudag og föstudag. Þá eru farnar sex […]
Gerði upp föðurmissi með stuttmynd

Útskriftarnemi frá Kvikmyndaskóla Íslands gerði upp föðurmissi með því að gera stuttmynd um slys sem varð á togaranum Breka frá Vestmannaeyjum fyrir 18 árum. Með eitt aðalhlutverkanna fer leikarinn Valdimar Örn Flygenring sem var til sjós með föðurnum vegna gerðar heimildarmyndar um sjómennsku stuttu fyrir slysið. (meira…)