Fyrsta ferðin 21. júlí

Gert er ráð fyrir að ferjusiglingar í Landeyjahöfn hefjist 21. júlí og nú er allt kapp lagt á að ljúka framkvæmdum við höfnina. Suðurverk hf. hefur séð um hafnargerðina og þar á bæ hafa menn fulla trú á að höfnin verði klár á tilsettum tíma. Björgun ehf. sér um dýpkun hafnarinnar og henni verður lokið […]

Ekkert bólar á sjúkraflugvél

Mikil óánægja er í Vestmannaeyjum með að ekki er sjúkraflugvél stað­sett í Eyjum. Í neyðartilvikum er send flugvél frá Akureyri. það hefur þegar gerst nokkrum sinnum. Fréttir ræddu við bæjarfulltrúana Páleyju Borgþórsdóttur, Sjálfstæðisflokki og Pál Scheving, Vestmannaeyjlista og eru þau sammála um að ástandið sé óviðunandi. (meira…)

�?rjú félög hafa áhuga á Hermanni Hreiðarssyni

Enn er óvíst hvar varnarjaxlinn Hermann Hreiðarsson mun leika á næsta tímabili en þrjú félög hafa sýnt honum áhuga. Samningur Hermanns við Portsmouth er að renna út og félagið vill halda honum. Að auki hefur eitt enskt félag og eitt annað félag utan Englands áhuga á Hermanni en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans við […]

Varúðarmerkingar við Sprönguna

Setja þarf upp merkingar við Sprönguna í Vestmannaeyjum til að vara fólk við hættum sem geta falist í því að spranga. Þetta er mat Adolfs Þórsson formanns Björgunarfélags Vestmannaeyja eftir að stúlka fótbrotnaði á svæðinu um síðustu helgi. Adolf segir að vegna þess að svæðið sé opið og hver sem er geti komið og sprangað […]

Um 600 gestir í mat fyrstu helgina

900 Grill er nýr veitingastaður í hjarta bæjarins sem var opnaður á föstudag. Hólmgeir Austfjörð og Jóhanna Inga Jónsdóttir eiga og reka staðinn sem er á Vestmannabraut 23 þar sem skóverslun Axel Ó. var lengst af til húsa. Húsnæðið er bjart og stílhreint og matseðilinn fjöl­breytt­ur og allir ættu að finna eitt­hvað við sitt hæfi. […]

Enn verðstríð á eldsneytismarkaði á Suðurlandi

Enn ríkir verðstríð á eldsneytismarkaði á Suðurlandi. Munar nú 17 krónum á lítranum af bensíni, hvort hann er keyptur af Orkunni eða Skeljungi en bæði félögin eru í sömu eigu. Á höfuðborgarsvæðinu munar tólf krónum á verði á bensínlítranum þar sem hann er ódýrastur og þar sem hann er dýrastur. Hjá Orkunni á Suðurlandi kostar […]

Tóku loftskammbyssu af 15 ára drengjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á loftskammbyssu í vikunni en nokkrir 15 ára drengir voru að leika sér að skjóta úr byssunni. Lögregla áréttar að skotvopnaleyfi þarf til að eiga og skjóta úr loftskammbyssu þar sem sömu reglur gilda um slík vopn, sem og önnur skottvopn. Annars var vikan með rólegra móti, ein stúlka féll […]

Kvennahlaupið 19. júní

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið í tuttugasta og fyrsta sinn, laugardaginn 19. júní. Í ár er yfirskrift hlaupsins “ Konur eru konum bestar” og er unnið í samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands sem fagnar 80 ára afmæli sínu á árinu. Um þúsundir kvenna á öllum aldri starfa í undir merkjum Kvenfélagasambandsins og vinna eftir markmið þess […]

Fjöldi með Flugfélag Íslands

Flugfélagi Íslands þá voru bókanir mjög góðar enda styttist óðfluga í hátíðina. Á fimmtudag eru settar 3 vélar og voru örfá sæti laus. Föstudaginn 30. júlí eru settar á áætlun 7 vélar, þar af var uppselt í 3. Á laugardag og sunnudag eru 2 vélar settar á og laust í báðar. Mánudaginn 2. ágúst þá […]

Margrét jafnaði á síðustu stundu

Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Kristianstad eitt stig í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær þegar hún skoraði úr vítaspyrnu á síðustu andartökum leiksins við Sunnanå. Heimaliðið komst yfir í leiknum en stelpurnar hennar Elísabetar Gunnarsdóttur þjálfara, gáfust ekki upp og fengu víti þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma og úr spyrnunni skoraði […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.