Frábært veður, frábærar stelpur og frábært mót

Nú er annar mótsdagur af þremur á Pæjumótinu hafinn og óhætt að segja að veðurguðirnir séu stelpunum hliðhollir. Sólin skín og veðrið er einstaklega gott þessa stundina sem gerir mót sem þetta enn betra. Í gær var veður líka mjög gott, smá hitabeltisskúr um miðjan dag en stelpurnar létu það auðvitað ekkert stöðva sig og […]

Kominn tími á stærri verslun

Eymundsson flutti í nýja og glæsi­lega verslun í húsnæði í Drífanda á horni Strandvegar og Bárustígs á laugar­dag. Húsnæðið er mun stærra en verslunin var í áður og auk þess að vera ritfanga- og bókaverslun er þar umboð Símans og þar er upp­lýs­ingamiðstöð fyrir ferðamenn. Ey­mundsson er líka með kaffi á boðstólum frá Te & […]

�?akkar skattgreiðendum fyrir ómetanlegar stundir og fjárhagsstuðning

Móðir dauðvona drengs þakkar íslensku velferðarkerfi fyrir að standa við bakið á sér eftir að ungur sonur hennar greindist með ólæknandi sjúkdóm. Hún segir fjárhagslegan stuðning hafa gert það að verkum að hún hafi fengið dýrmætar stundir með syninum sem aldrei verði teknar frá sér. Í grein sem Guðrún Guðmundsdóttir skrifar í Morgunblaðið í dag […]

Makríl- og síldveiðar að hefjast

Makrílveiðar eru um það bil að hefjast og flest skip og útgerðir, sem hyggja á veiðar, um það bil að byrja eða í startholunum. Huginn VE er á síld og makrílveiðum og var nýkominn á miðin við Þórsbanka á miðvikudags­morgun. „Þetta er í það fyrsta, þeir tóku eitt hal og það er ekkert að gerast […]

Hestapestin ekki skæð í Eyjum

Hestapest hefur verið að gera hrossa­bændum erfitt fyrir um land allt. Pestin varð m.a. til þess að fresta varð Landsmóti hestamanna. Afleiðingarnar eru umtalsverðar enda hafa fjölmargir atvinnu af hrossarækt og sölu hrossa. Eftir því sem næst verður komist, hefur hestapestin ekki herjað á hross í Eyjum í sumar. Gunnar Árnason, hrossabóndi í Lukku, segir […]

Páll og Elliði fengu flestar útstrikanir

Að vera í fararbroddi í pólitík setur fólk gjarna í þá stöðu að eignast óvildarmenn. Andúð sína á stjórnmálamönnum er hægt að sýna á margvíslegan hátt. Ein leiðin er að gera það í kosningum, t.d. með því að strika yfir nafn viðkomandi á kjörseðlinum. Ekki var það gert í stórum stíl í Eyjum við síðustu […]

Fjórar ferðir í höfn

„Ég hef fulla trú á að ráðherra muni á næstunni koma til móts við kröfu Eyjamanna um lágmark fjórar ferðir á dag allan ársins hring í Landeyjahöfn, miðað við ákveðnar upplýsing­ar sem ég hef,“ sagði Árni Johnsen, alþingismaður, í samtali við Fréttir. (meira…)

Fjölmennara Pæjumót en í fyrra

Um helgina er haldið hið árlega Pæjumót TM og ÍBV en þar spilar 5. flokkur kvenna. Mótinu hefur vaxið fiskur um hrygg og er mótið fjölmennara en fyrir ári síðan. Mótið hefst á fimmtudagsmorgun en lýkur um miðjan dag á laugardag. Sú nýbreytni að ljúka mótunum á laugardegi hefur mælst vel fyrir hjá gestum Pæju- […]

Leitað að hæfileikaríkum krökkum í Eyjum í byrjun júlí

Þær Sigga Beinteins og María Björk, söngkonur og Söngvaborgarhöfundar, eru komnar af stað með söngvakeppnina Röddin, fyrir 12 til 16 ára. Keppnin fer þannig fram að þær stöllur munu ferðast hringinn í kringum landið, finna hæfileikaríka krakka og 18. september fer svo fram lokakeppni í Reykjavík. Keppnin verður í Höllinni í Vestmannaeyjum þann 3. og […]

�?dýrasta eldsneytið í Eyjum

Það eru sjálfsagt margir sem reka upp stór augu þegar þeir lesa fyrirsögnina við þessa frétt enda hefur bensínverð í Vestmannaeyjum til þessa verið við efri mörk en þau neðri. En annað hefur komið á daginn því nú er lægsta bensínverðið á landinu í Eyjum. Orkan býður bensínlítrann nú á 186 krónur en ÓB á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.