Forval vegna útboðs á nýjum streng opnað í september

Viðgerð Landsnets á Vestmannaeyjastreng 3 (VM3) til Vestmannaeyja lauk í byrjun ágúst, eftir að bilun kom upp í strengnum í janúar á þessu ári. Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets sagði í samtali við Eyjafréttir viðgerðina hafa gengið vel. Fram hefur komið að Landsnet vinnur áfram að undirbúningi að lagningu nýrra sæstrengja til Vestmannaeyja til þess að […]

Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Strandvegi 51 samþykkt

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í vikunni tillögu að breyttu deiliskipulagi að Strandvegi 51 og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Ein athugasemd barst ráðinu þar sem meðal annars er farið fram á að lögum sé fylgt vegna breytinga á deiliskipulagi, þá m.a umfang hússins, lóðamörk og að eitt bílastæði skuli fylgja hverri íbúð. Verði þessum lögum […]

Opið fyrir umsóknir í uppbyggingasjóð Suðurlands

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í haustúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2023. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi […]

Útsýnisskífa á Heimaklett

Á fundi umhverfis og skipulagsráðs í vikunni lá fyrir umsókn um uppsetningu útsýnisskífu á Heimakletti. Lára Skæringsdóttir fyrir hönd Rótarklúbbs Vestmannaeyja sótti um uppsetningu útsýnisskífu á Heimakletti. Skífunni er ætla að efla þekkingu á nærumhverfi og styrkja upplifun ferðmanna. Fram kemur í umsókninni að Rótarýklúbbur Vestmannaeyja hafi verið að vinna að umhverfisverkefni sem snýr að […]

Matey á Einsa Kalda

Veitingarstaðurinn Einsi Kaldi mun ekkert slá af í ár líkt og í fyrra þegar sjávarréttahátíðin Matey fór fram. Í ár mun ítalski matreiðslumeistarinn Francesco Triscornia vera gestakokkur á Einsa Kalda. Hátíðin fer fram dagana 21-23. september og þú getur bókað borð á matey.is og einsikaldi.is.   (meira…)

Aglowfundur í kvöld

Í kvöld miðvikudaginn 6. september Kl. 19.30 verður Aglowfundur í Safnaðarheimili Landakirkju. Þetta er fyrsti fundur vetrarins og eftir veðursælt sumar fannst okkur tilvalið að fjalla um 23. Davíðssálm sem margar okkar þekkja vel og við syngjum oft saman. En höfum við hugleitt um hvað innihald sálmsins er? 23 Davíðssálmur. Drottinn er minn hirðir, mig […]

Æfir breikdans á Vigtartorgi (myndband)

Vegfarendur um Vigtartorg seinnipartinn í gær ráku upp stór augu þar sem ungur maður æfði breikdans. Þar var á ferðinni Moritz Schmid sem er búsettur í Vestmannaeyjum um þessar mundir til þess að vinna á Slippnum. Hann sagði í samtali við blaðamann Eyjafrétta að hann hafi æft breikdans í rúm fjögur ár og Vigtartorgið væri […]

Eyjakonur styrktu stöðu sína í fallbaráttunni

Eyjakonur voru í öðru sæti af fjórum í neðri hluta úrslita Bestu deildarinnar fyrir leikinn gegn Selfossi á Hásteinsvelli í gær sem þær unnu 2:1. Það var Olga Sevcova sem skoraði bæði mörkin og styrkti stöðu ÍBV verulega í baráttunni um sæti í Bestu deild að ári. ÍBV endaði í áttunda sæti deildarinnar með 18 […]

Nýtt kvótaár fer vel af stað

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í Neskaupstað sl. sunnudag. Aflinn var þorskur og ýsa. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. „Við vorum á Glettinganesflakinu og þar var ágætis kropp. Fiskurinn sem þarna fékkst var líka mjög góður. Í túrnum gerði suðaustanbrælu og þá dró svolítið úr […]

Stelpunum spáð þriðja sæti og strákunum því fjórða

Árleg spá forráðamanna liðanna í Olís deildunum var kynnt í  hádeginu á Grand hóteli á kynningarfundi Íslandsmótsins í handknattleik. Deildar- og bikarmeistarar síðustu leiktíðar, ÍBV, er spáð þriðja sæti í kvenna flokki. Íslandsmeisturum ÍBV er spáð fjórða sæti. FH-ingar verða yfirburðalið í Olísdeild karla á komandi keppnistímabil og Íslandsmeistara Vals bera höfuð og herðar yfir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.