Kári Kristján valinn í íslenska landsliðið

Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson, sem nú leikur með Haukum, var í dag valinn í landsliðshóp Guðmundar Guðmundssonar, þjálfara A-landsliðs karla í handbolta. Kári á að baki fimm leiki með A-landsliðinu en hann hefur leikið afar vel með Haukum í vetur. Íslenska landsliðið undirbýr sig nú fyrir forkeppni Evrópumeistaramótsins sem fer fram í Austurríki í janúar […]
Horfir til betri vegar með í viðskiptum með erlendan gjaldeyri

Undanfarna daga hafa gjaldeyrismál landsins verið í erfiðri stöðu en nú sjáum við hér í Eyjum mjög jákvæð teikn um breytingar til hins betra. Í gær fimmtudag, voru að skila sér inn erlendar greiðslur á reikninga fyrirtækja hér í Eyjum sem höfðu farið af stað deginum áður, m.a. frá Bretlandi. Þetta sýnir að sameiginlega er […]
Bæjarstjórn harmar drátt á samningagerð vegna Vestmannaeyjaferju

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem hún harmar þann drátt sem þegar hefur oðið á endanlegum frágangi við samninga um nýsmíði á Vestmannaeyjaferju. Bæjarstjórn skorar á Kristján Möller, samgönguráðherra að sjá til þess að staðið verði við ítrekuð loforð um að ný ferja hefji siglingar milli Vestmannaeyja og Bakkafjöru eigi […]
Ekki búið að fresta útboði fjölnota íþróttahúss

Á vef mbl.is er grein þar sem farið er yfir framkvæmdir sveitarfélaga, eða öllu heldur frestanir á þeim í því árferði sem nú er. Meðal annars er haft eftir Ólafi Þór Snorrasyni, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs í Vestmannaeyjum að ákveðið hefði verið að bíða með útboð vegna fjölnota íþróttahúss. Ólafur sagði í samtali við Eyjafréttir […]
Táknræn mótmæli við meðferðina á Sigmund

Það er með söknuði í huga að undirritaður tilkynnir uppsögn á áskrift að Morgunblaðinu sem ég hef haft samfellt í um fjóra áratugi. Ástæðan er ekki óánægja með efni blaðsins sem hefur í gegnum tíðina verið vandaðra og betra um flest en önnur íslensk dagblöð. Uppsögnin er einvörðungu táknræn andmæli við meðferð á rótgrónasta, hæfasta […]
Styrktartónleikar fyrir Sólheima í Grímsnesi

Styrktartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju á morgun laugardaginn 25. október kl. 14:00 til styrktar nýrri byggingu á Sólheimum í Grímsnesi, sem líknar- og vinafélagið Bergmál er að byggja. Miðaverð kr 2000 krónur. Hægt er að panta miða í síma 692 1185 eða í gegnum póstfangið sigad@fiskistofa.is (meira…)
�?akkar aðilum sem stóðu fyrir blysförinni til heiðurs Sigurjóni �?lafssyni

Eyþór Arnalds, D-lista, óskaði eftir að tekin yrði á dagskrá bókun vegna aldarafmælis Sigurjóns Ólafssonar. Var það samþykkt samhljóða. Í fyrradag var þess minnst að 100 ár eru frá fæðingu Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara frá Einarshöfn á Eyrarbakka. Kennarar og nemendur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri ásamt fleirum, alls um 200 manns, heiðruðu minningu listamannsins […]
Lýsing á gatnamót Eyrarbakkavegar og Gaulverjabæjarvegar

Vegagerðin vinnur nú að því að koma fyrir ljósastaurum á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Gaulverjabæjarvegar. Umferð er mikil um þennan veg og mun lýsing á gatnamótunum auka umferðaröryggi þarna til mikilla muna. Á ágætri heimasíði Óðins Andersen á Eyrarbakka má sjá umferðarteljara sem er á þessum vegi og fróðlegt er að líta á: http://www.123.is/brim/ (meira…)
Ekki útséð með hvar ÍBV spilar sína heimaleik næsta sumar

Ekki er öruggt að ÍBV spili sína heimaleiki á Hásteinsvelli eins og greint var frá í morgun en Ómar Smárason, leyfisstjóri KSÍ leiðrétti það í samtali við blaðamann og sagði eingöngu að lokafresti til framkvæmda hefði verið seinkað um tvö ár, frá 2010 til 2012. Kröfur leyfiskerfisins standa enn og enn er gert ráð fyrir […]
Kjötsúpudagurinn er næsta laugardag

Markaðsráð kindakjöts gengst fyrir hinum árlega kjötsúpudegi nú á laugardaginn, fyrsta vetrardag. Markaðsráðið hefur skipulagt þetta verkefni mörg undanfarin ár með góðum árangri. Kjötsúpudagurinn gengur út á það að fólk er hvatt með auglýsingum til að fagna vetri með því að elda íslenska kjötsúpu og nýta tækifærið og bjóða til sín vinum og ættingjum. Verslanir […]