ÍBV endaði í neðsta sæti

Karlalið ÍBV endaði í neðsta sæti N1 deildarinnar en þrátt fyrir að vera löngu fallið, skýrðist það ekki fyrr en í dag hvort liðið endaði í neðsta eða næst neðsta sæti. Þrátt fyrir ágætis gengi á lokakafla Íslandsmótsins tókst Eyjamönnum ekki að komast upp úr neðsta sætinu, þar sem liðið hefur setið sem fastast. Í […]

Mikið tap á rekstri Vinnslustöðvarinnar

Tap á rekstri Vinnslustöðvarinnar var 1153 milljónir króna á fyrsta fjórðungi ársins en á sama tímabili á síðasta ári var 765 milljóna króna hagnaður á rekstrinum. Segir félagið að skýringa þessara breytinga er fyrst og fremst að leita í fjármagnsliðum félagsins. Heildartekjur félagsins voru 1623 milljónir króna en 1750 milljónir króna á sama tímabili í […]

Sigurður skoraði átta og Elverum er Noregsmeistari

Sigurður Ari Stefánsson skoraði átta mörk þegar Elverum tryggði sér Noregsmeistaratitilinn í handknattleik með sigri á Drammen. Leikurinn fór fram í Bergen og var úrslitaleikur um titilinn en leikurinn endaði 33:31 fyrir Elverum. Ingimundur Ingimundarson skoraði sjö mörk en þjálfari liðsins er Axel Stefánsson og var þetta síðasti leikur liðsins undir hans stjórn. (meira…)

Góðum körfuboltavetri lokið

Fimmtudaginn 1. maí fór fram lokahóf yngri flokka körfuboltans hjá ÍBV. Árangur körfuknattleiksliða frá Vestmannaeyjum hefur aldrei verið betri og því næg ástæða til að fagna góðum árangri en auk þess voru fjölmörg einstaklingsverðlaun veitt. Leikmenn fjölmenntu auðvitað á hófið en fjölmargir foreldrar einnig og þar sem veðurblíðan var einstök á fimmtudag, þá skelltu allir […]

Söngleikur í Versölum sunnudaginn 4. maí klukkan 14:00

Síðustu tónleikar Tóna við hafið á þessum vetri verða sunnudaginn 4. maí, þegar fluttur verður söngleikurinn Lifandi skógur í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss.Tónleikarnir eru skipulagðir í samstarfi við Tónlistarskóla Árnesinga og Grunnskóla Þorlákshafnar. (meira…)

Hjálma- og hjóladagurinn í dag

Kiwanisklúbburinn Helga­fell, Eimskip og Flytjandi ætla að gefa börnum grunnskólanna, sem byrjuðu í 1. bekk síðast­liðið haust, öryggishjálma. Hjálmarnir verða afhentir í dag, laugardag, 3. maí kl. 11 á planinu við Kiwanishúsið. (meira…)

Hreinsunardagur á morgun

Á morgun, laugardaginn verður hinn árlegi hreinsunardagur á Heimaey. Félagasamtök í Eyjum hafa í gegnum tíðina tekið þátt í þessu verkefni og hefur fyrirkomulagið gengið mjög vel. Hið sama verður uppi á teningnum í ár, félagasamtökum verður úthlutað sérstökum svæðum sem þau síðan hreinsa. Starfsmenn Sorpeyðingastöðvarinnar munu svo vera hópunum innan handar. (meira…)

Herrakvöld fótboltans í kvöld

Í kvöld verður haldið Herrakvöld knattspyrnudeildar ÍBV. Herrakvöldið verður haldið í Vélasalnum og opnar húsið klukkan 19.30. Í boði verður fínasti grillmatur, skemmtiatriði, bögglauppboð og margt fleira. Ræðumaður kvöldsins er bakarinn góðkunni Magnús Bergur Sigmundsson. Þá verður boðið upp á léttar veitingar á vægu verði. Aðgangur er 3500 krónur en áhugasamir geta haft samband við […]

Hestamannakaffi Umf. Baldurs

Hestamannakaffi Umf. Baldurs, sem frestað var í apríl, verður haldið í Þingborg laugardaginn 3. maí næstkomandi. Nú er um að gera að mæta í kaffi og sýna þá gæðinga sem fólk hefur alið í vetur og monta sig aðeins. Húsið opnar kl. 13:00 og stendur kaffið til 17:00. Allir eru hvattir til að mæta, á […]

Miklu munar á tilboðum og kostnað­aráætlun

Á þriðjudag voru opnuð tilboð í jarð­vegsframkvæmdir vegna bygg­­ingar fjölnota íþróttahúss í Vestmannaeyjum. Sex tilboð bárust og voru öll langt yfir kostnaðaráætlun. Fyrir­tæki sem buðu í verkið eru: Bor­verk ehf. 49.3 milljónir króna, Nettur ehf. 52 milljónir, Hall­­geir ehf., Bíldrangur ehf., Sig­urgeir L. Ingólfsson 55.5 milljónir, Ís­lenska Gámafélagið ehf. 64,7 milljónir, GT Verktakar ehf. 66.4 […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.