Hausaþurrkun Lýsis hf í �?orlákshöfn
Lýsi hf hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna starfsemi fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Í fréttatilkynningunni eru augljósar rangfærslur sem Sveitarfélagið Ölfus telur sig knúið til að svara. (meira…)
Góður árangur hjá handboltaakademíunni
Á þriðjudagskvöld unnu strákarnir okkar í handboltaakademíunni (3. flokkur karla sem keppir undir merkjum UMF Selfoss) lið Hauka 31 – 23 og tryggðu sér þar með deildarmeistaratitilinn. Strákarnir hafa náð í öll stigin sem í boði voru í vetur nema 3 og eru með 171 mark í plús. Framundan er svo úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn sem […]
Nánast óbreytt stjórn hjá R�?V ohf.
Kosið var í fimm manna stjórn Ríkisútvarpsins ohf. á Alþingi í dag og urðu litlar breytingar á henni. Ómar Benediktsson, sem verið hefur stjórnarformaður Ríkisútvarpsins frá því að það var gert að opinberu hlutafélagi í fyrra, situr áfram í stjórninni og það gera þær Kristín Edwald, Margrét Frímannsdóttir og Svanhildur Kaaber einnig. Ari Skúlason er […]
ÍBV upp að hlið Aftureldingar

Eyjamenn komust upp að hlið Aftureldingar á botni N1 deildarinnar í kvöld en liðin áttust við í Eyjum. Bæði lið eru þegar fallin og því í raun ekki að neinu að keppa en engu að síður var leikurinn bráðfjörugur. Eyjamenn virtust ætla að stinga af í fyrri hálfleik og í leikhléi var staðan 15:11. Gestirnir […]
Stöðugt meira selst af innlendum bjór
INNLENDUR bjór er stöðugt að auka markaðshlutdeild sína í samkeppni við innfluttan bjór. Á síðast ári var 66% af öllum bjór sem ÁTVR seldi innlendur, en þetta hlutfall var 64% árið 2006 og 52% árið 1998. Þetta kemur fram í ársskýrslu ÁTVR fyrir árið 2007. (meira…)
Gistiheimili opnað á Stokkseyri
Gistiheimilið Kvöldstjarnan var opnað formlega á Stokkseyri í síðustu viku. Þar með er komið til móts við þá fjölmörgu sem heimsækja þorpið árlega og vilja staldra við eða eiga náðuga daga á þessum sérstaka stað. Tugir þúsunda ferðamanna heimsækja Stokkseyri árlega. (meira…)
Vel sótt málþing
Um 70 manns sótti málþing um málefni innflyjenda sem haldið var í Þorlákshöfn s.l. föstudag. Þingið hófst með ávarpi Unnar Þormóðsdóttur formanns velferðarmálanefndar SASS. Á málþinginu voru haldin fjölmörg erindi þar sem varpað var ljósi á ýmsar hliðar innflytjendamála. (meira…)
Að velja á milli áframhaldandi siglinga í �?orlákshöfn og siglingu í Landeyjahöfn er val um stöðnun eða framfarir

Enn og aftur ríða á vaðið andstæðingar samgöngubóta í formi Landeyjahafnar með sömu rökin og endalaust er búið að hrekja í ræðu og riti. Ég hef fylgst með undirskriftasöfnun hóps sem er á móti þessari samgöngubót sem vill fá sem flesta til að skrifa nafn sitt á þennan lista. Á síðu þessa hóps má lesa […]
Ferðir falla niður í 5-9 daga á ári

Sigurður Grétarsson, forstöðumaður hafnarsviðs Siglingastofnunar, segir reiknað með að fella þurfi niður ferðir Herjólfs 5-9 daga á ári vegna veðurs eftir að Landeyjarhöfn hafi verið tekin í notkun. Truflun geti orðið á siglingum 10-15 daga á ári. Þetta sé svipað og er í dag þegar siglt er til Þorlákshafnar. (meira…)
Birkir fer frá N-Lübbecke

Þýska handknattleiksfélagið NLübbecke tilkynnti í gær að íslenski landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson færi frá félaginu í vor, þegar samningur hans við það rennur út. Birkir hefur varið mark liðsins undanfarin tvö ár. „Þetta var í raun löngu ákveðið því ég hef ekki áhuga á að standa í þessari botnbaráttu lengur. Hún er niðurdrepandi og ég […]