Eyjamaður yfir Hagstofunni

Geir H. Haarde, forsætis­ráðherra hefur skipað Ólaf Hjálmarsson, skrifstofu­stjóra í embætti hagstofu­stjóra til næstu fimm ára frá og með 1. mars. Níu sóttu um starfið. Ólafur er sonur hjónanna Hjálmars Þorleifssonar, rafvirkja og Kristínar Björns­dóttur frá Bólstaðar­hlíð. Æskuslóðir Ólafs voru austur í Grænuhlíð en þar bjuggu foreldrar hans fram að gosi. Systkini Ólafs eru Inga, […]

Stanslaust stuð með Páli �?skari

Skífuþeytarinn, diskó­kóngurinn og glys­popparinn Páll Óskar Hjálm­­­týsson mun skemmta í Vestmanna­eyjum á föstudag. Ekki dugar minna en tvö böll sama kvöldið til að stuðið skili sér almennilega en klukkan 21 hefst dans­leikur fyrir elstu bekki grunn­skólans en Féló heldur ballið. Á miðnætti er svo komið að nem­endum Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum að reima á sig diskóskóna […]

�?rír brasilískir leikmenn í ÍBV

Þrír brasilískir leikmenn hafa æft með knattspyrnuliði ÍBV undanfarið. Búið er að gera reynslusamning við leikmennina í mánuð og að honum liðnum verður tekin ákvörðun um hvort samið verði við þá. Alexandre da Silva Cerdeira er 27 ára sóknar­­maður sem var m.a. í herbúðum Vasco de Gama, skoska úrvals­deildarliðsins Dundee og var fastamaður í liði […]

Gáfu bæði sjúkrahúsinu og dvalarheimili aldraðra

Slysavarnadeildin Eykyndill kom færandi hendi bæði á Heil­brigðisstofnun Vest­mannaeyja og Hraunbúðir á mánudag. Stjórn Eykyndils afhenti Karli Björnssyni, yfirlækni Heilsu­gæslunnar, tæki sem koma að góðum notkun við stofnunina. Eykyndilskonur gáfu gifssög og brennara til að brenna fyrir æðar og fjarlægja húðbreytingar. Einnig gáfu Eykyndilskonur ­eyrnasjá og augnskoðunartæki sem nýtist vel til að skoða ­skemmdir vegna […]

Hótað að kvarta við Umboðs­mann Alþingis

Opus lögmenn hafa sent bæjar­stjórn Vestmannaeyja bréf fyrir hönd Bergs Sigmundssonar, eig­anda Vilbergs kökuhúss. Er það vegna ákvörðunar umhverfis- og skipulagsráðs að banna bifreiða­stöður fyrir framan húsnæði fyrirtækisins að Bárustíg 7. Bréfið er ítrekun erinda frá maí, september og nóvember á síðasta ári þar sem farið er fram á endurskoðun á þessari ákvörð­un ráðsins. (meira…)

Bætt þjónusta við bæjarbúa

Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum hefur opnað heimasíðu á slóðinni http://www.hsve.is Þar er að finna allar helstu upplýsingar um starfssemi og þjónustu stofnunarinnar, komur sérfræðinga, tímabókanir, neyðarþjónustu, laus störf, aðrar tilkynningar og fréttir. Það er von okkar að heimasíðan verði til að bæta þjónustu og upplýsingaflæði til bæjarbúa. (meira…)

�?ryggismál verða hert

Jólasveinanefnd Umf. Selfoss fundaði á dögunum þar sem farið var yfir öryggismál. Þetta var gert í kjölfar þess að Þröstur Ingvarsson, brennustjóri, brenndist þegar sprenging varð er kveikt var í bálkestinum þann 6. janúar sl. (meira…)

FSu fær Króata

1. deildarlið FSu í körfuknattleik hefur fengið Króatann Ante Kapov til liðs við sig. Kapov er 31 árs og tveir metrar á hæð og mun því nýtast liðinu vel inni í teig. (meira…)

Jóhann �?lafur í Selfoss

Samkvæmt heimildum blaðsins hefur markvörðurinn Jóhann Ólafur Sigurðsson ákveðið að ganga í raðir 1. deildarliðs Selfoss frá Fylki þar sem hann hefur verið varamarkvörður undanfarin ár.Jóhann er 22 ára gamall, uppalinn á Selfossi, og hefur m.a. leikið með yngri landsliðum Íslands. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.