Bætt kjör aldraðra og öryrkja

Ríkisstjórnin hefur kynnt aðgerðir sem hún hyggst hrinda í framkvæmd fyrri áramót og eru til þess að bæta kjör aldraðra og öryrkja. Um þær má segja að þar er gott skref í rétta átt. Það er sjálfsagt að stuðla að því að nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga fyrir jólahlé Alþingis. En það ber að […]

Eyjamenn engin hindrun fyrir Íslandsmeistarana

Valsmenn áttu ekki í teljandi vandræðum með slaka Eyjamenn í dag þegar liðin áttust við í Vestmannaeyjum í N1 deildinni. Lokatölur urðu 28:40 en staðan í hálfleik var 8:18. Valsmenn hafa verið á miklu skriði að undanförnu og eiga án efa eftir að gera harða atlögu að toppnum á nýju ári. Eyjamenn sitja hins vegar […]

Frítt á leikinn gegn Íslandsmeisturunum

Í dag klukkan 15.00 taka Eyjamenn á móti Íslandsmeisturum í Val í N1 deild karla. Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV kemur á nýjan leik inn í leikmannahóp ÍBV eftir tveggja leikja bann en Sindri Haraldsson, stórskytta, er í leikbanni. Fréttir og Sparisjóðurinn hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða öllum á leikinn enda mikið í […]

Gáfu Landakirkju og skólum bæjarins nýju Biblíuna

Hjónin Magnús Kristinsson og Lóa Skarphéðinsdóttir afhentu í dag nýju Biblíuna en þau gefa öllum skólum bæjarins og sömuleiðis Landakirkju. Meðal annars gáfu þau Landakirkju nýja Biblíu á altarið sem verður vígð við guðsþjónustu á sunnudaginn. Afhending Bíblíunnar fór fram í Landakirkju í dag og tóku fulltrúar skólanna og kirkjunnar við gjöfinni úr hendi hjónanna. […]

All hrikalegir vegir

Samgöngumál eru Vestmannaeyingum sem öðrum afar hugleikin. Sumir búa jú við góðar samgöngur, aðrir ekki. Eyjamenn eru í þeim hópi. En það eru líka margir aðrir. Td. fólk sem býr í Bólivíu og notar vegakerfi eitthvað í likingu við það sem þessar myndir sýna. (meira…)

Samþykktir um byggingu knattspyrnuhúss standa

Eins og kunnugt er hefur Vestmannaeyjabær þegar tekið ákvörðun um að byggja knattspyrnuhús vestan við Týsheimilið. Áætlaður byggingakostnaður er um 210 milljónir fyrir utan jarðvegsframkvæmdir. Bæjarstjórn samþykkti einróma að fela umhverfis- og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja slíkt knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum með það fyrir augum að það verði tekið í gagnið árið […]

Fyrstu nemendurnir útskrifaðir frá Háskólanum í Bifröst

Í gær útskrifuðust í Vestmannaeyjum átta nemendur úr fjarnámi við Háskólann á Bifröst. Þetta er í fyrsta sinn sem nemendur í Vestmannaeyjum eru útskrifaðir á staðnum en Háskólinn á Bifröst og fræðslu- og símenntunarmiðstöðin Viska hófu samstarf á haustmánuðum. Nemendurnir útskrifuðust úr upplýsingatækni og bókhaldi en nemendurnir átta unnu allt sitt nám úr sinni heimabyggð […]

Málaferli við �?jórsá verði ekki hætt við virkjanir

„Dómstólaleiðin lítur nú út fyrir að verða sú eina færa fyrir landeigendur við Þjórsá sem draga í efa lögmæti Títansamningsins og réttmæti aðgerða Landsvirkjunar við Þjórsá. Undirbúningur bótakrafna á hendur sveitarfélögum er einnig hafinn. Þetta kom fram á fundi landeigenda og andstæðinga virkjana í Sól á Suðurlandi á fundi í Flóanum í síðustu viku. Á […]

Gjafmildir Kiwanismenn

Sl. föstudag afhentu Kiwanismenn í Ölfusi Heilsugæslu Þorlákshafnar skoðunarbekk og tilheyrandi búnað. Kiwanisklúbburinn Ölver hefur lengi staðið við bakið á heilsugæslunni og skemmst er að minnast röntgenbúnaðar sem klúbburinn gaf á síðasta ári. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.