Rúmlega 228 m.kr. jákvæð rekstrarafkoma í fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar

Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2023. Áætlaðar tekjur á árinu 2023 eru 7.819 m.kr. og hækka um 726 m.kr. frá áætlun 2022. Tekjur eru varlega áætlaðar og ekki gert ráð fyrir að skatttekjur ársins 2023 verði hærri en raunskatttekjur þessa árs. Rekstarútgjöld eru áætluð 7.625 m.kr. á árinu 2023. Sem fyrr eru fræðslu- […]
Lög brotin við ráðningu hafnarstjóra

Brotin voru lög við ráðningu hafnarstjóra. Dómsorð taldi málsmeðferð hafnarstjórnar ámælisverða og ekki lögum samkvæmt. Hafnarstjórn sinnti ekki rannsóknarskyldu sinni né veitti stefnanda andmælarétt. Ekki var sýnt fram á að leitast hafi verið við ráða hæfasta einstaklinginn og málsmeðferð Vestmannaeyjahafnar dró mjög úr raunhæfum möguleikum stefnanda á að verða ráðinn í starfið Ítrekaðar viðvaranir Sjálfstæðismanna […]
Ísfélagið býður jólasíld

Ísfélag Vestmannaeyja býður öllum bæjarbúum einstaka jólasíld, á meðan birgðir endast. Afhending fer fram í portinu við frystihús Ísfélagins að Strandvegi milli kl. 12 og 14 á morgun laugardaginn 3. desember. (meira…)
Fróðleg erindi á opnum fundi

Mánudaginn 05.12.2022 verður afar áhugaveður fundur í Þekkingarsetrinu þar sem fjórir forvitnilegir fyrirlestrar verða haldnir. Þetta er endurtekning á fyrirlestrum sem Eyjamenn fluttu á Sjávarútvegsráðstefnunni sem haldin var í Hörpu þann 17-18 nóvember síðastliðin. Þar voru fjögur erindi sem flutt voru af eyjamönnum sem vöktu mjög mikla athygli. Þessi erindi verða nú endurtekin n.k. mánudag […]
Ert þú með nafn fyrir dagdvölina?

Nú er stækkun á dagdvölinni við Hraunbúðir í fullum gangi. Búið er að gera miklar breytingar til að koma til móts við fjölgun einstaklinga í dagdvölinni og þarfir þjónustuþega. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar. Dagdvölin er úrræði fyrir einstaklinga sem búa í heimahúsum og þurfa stuðning í þeim tilgangi að viðhalda færni […]
Styrktarsjóður Landakirkju tekur við umsóknum

Styrktarsjóður Landakirkju veitir fólki sem hefur fasta búsetu í Eyjum aðstoð fyrir jólin og erum við byrjaðir að taka við umsóknum um aðstoð. Sjóðurinn getur að sjálfsögðu ekki starfað nema vegna velvildar fyrirtækja og einstaklinga sem hafa í gegnum árin verið afar rausnarleg í framlögum sínum, sem hefur gert það að verkum að þau sem […]
Útflutningsverðmæti loðnuafurða komið í tæpa 46 milljarða

Á fyrstu 10 mánuðum ársins er útflutningsverðmæti loðnuafurða komið í tæpa 46 milljarða króna. Það er hátt í tvöföldun frá sama tímabili í fyrra. Loðna hefur þar með skilað næstmestu útflutningsverðmæti á eftir þorski af öllum þeim fisktegundum sem fluttar eru frá Íslandi. Radarinn.is tók saman skemmtilega greiningu á sérstöðu loðnunnar þegar kemur að verðmætasköpun. […]
Glenn sækir liðsstyrk til Eyja

Keflavík hefur samið við tvo nýja erlenda leikmenn sem báðar fylgja nýjum þjálfara liðsins úr Eyjum. Madison Wolfbauer og Sandra Voitane hafa báðar skrifað undir samning um að spila með Keflavík í Bestu deildinni. Báðar léku þær undir stjórn Jonathan Glenn hjá ÍBV í sumar en ÍBV lét Glenn fara eftir tímabili. Glenn tók síðan […]
Sóknarfæri í nýsköpun

Sóknarfæri í nýsköpun er átta vikna sunnlenskur viðskiptahraðall þar sem áhersla er lögð á verkefni sem tengjast orku, mat og líftækni, ferðaþjónustu og skapandi greinum. Hraðlinum verður stýrt af Svövu Björk Ólafsdóttur stofnanda RATA sem jafnframt leiðir kynningarfundinn. Hraðallinn er ætlaður frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Suðurlandi sem eru komin af […]
Landa fullfermi í Eyjum

Ísfisktogararnir Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu allir nú í byrjun vikunnar. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Gullver landaði rúmlega 100 tonnum á Seyðisfirði í gær. Mestur hluti aflans var þorskur og ýsa. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að veðrið í túrnum hefði verið misjafnt. „Fyrstu tvo dagana var bölvuð bræla […]