Nú er stækkun á dagdvölinni við Hraunbúðir í fullum gangi. Búið er að gera miklar breytingar til að koma til móts við fjölgun einstaklinga í dagdvölinni og þarfir þjónustuþega. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.
Dagdvölin er úrræði fyrir einstaklinga sem búa í heimahúsum og þurfa stuðning í þeim tilgangi að viðhalda færni og getu til að búa áfram heima. Áhersla er lögð á að styðja notendur dagþjálfunnar til sjálfstæðis og sjálfræðis, ásamt því að efla færni og sjálfsbjargargetu heima og í dagdvöl, og auka lífsgæði þjónustuþega. Tekið er mið af getu hvers og eins þannig að hver og einn fái að njóta sín, finni fyrir öryggi og vellíðan. Boðið er meðal annars upp á aðstoð við böðun, æfingar og ýmis konar virkni.
Til þess að fullkomna breytingarnar mun dagdvölin fá nýtt nafn. Þess vegna óskum við eftir tillögum frá bæjarbúum að nafni á dagdvölina. Tillögurnar má senda á netfangið dagdvol@vestmannaeyjar.is merkt: Nafnasamkeppni.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.