Truflanir á raforkuafhendingu

Truflanir á raforkuafhendingu voru til umræðu á fundi almannavarnanefndar sem fram fór í vikunni. Rætt um truflanir á raforkuafhendingu en upp er komin sú staða einungis er notast er við VM1 sem getur flutt 7Mw af orku til Vestmannaeyja og með því eru keyrðar ljósavélar. Búið er að skerða hitaveitu og varmadælustöð og fiskvinnslustövarnar eru […]

Veitur en ekki veitur!

Fjarvarmaveitur nota rafskautakatla til að búa til gufu sem síðan er notuð til hita upp hringrásarvatn hitaveitunnar. Fjarvarmaveitur nota sem sagt raforku til að búa til varmaorku. Á grundvelli orkupakka 1 og 2 og orkulaga frá 2003 sagði Landsvirkjun upp raforkusamningi við fjarvarmaveitur árið 2010. Orkumarkaðnum var skipt upp í framleiðslu, flutning og dreifingu. Fjarvarmaveitur […]

Gengur vel á Bergey

Ísfisktogararnir Gullver NS og Bergey VE lönduðu í byrjun vikunnar og Bergey mun landa á ný í dag. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Steinþór Hálfdanarson, skipstjóra á Gullver, og Ragnar Waage Pálmason, stýrimann á Bergey. Steinþór sagði að afli hefði verið þokkalegur í veiðiferðinni en veðrið leiðinlegt. „Við lönduðum 105 tonnum í heimahöfn á Seyðisfirði á […]

Harma að Vestmannaeyjabær hafi ekki fest kaup á gamla sambýlinu

Félagslegar leiguíbúðir Vestmannaeyjabæjar voru til umræðu á fundi Fjölskyldu- og tómstundaráðs en ráðið fjallaði síðast um félagslegar leiguíbúðir Vestmannaeyjabæjar á 267. fundi sínum þann 09.09.2021. Fór þá framkvæmdastjóri og yfirfélagsráðgjafi yfir stöðu biðlista og mikilvægi þess að tryggja að húsnæði sé til taks fyrir einstaklinga sem þess nauðsynlega þurfa. Ráðið samþykkti fyrir sitt leiti að […]

Flokkur fólksins skoðar framboð

Bær Eldfell

Sveitastjórnarkosningar fara fram laugardaginn 14. maí næstkomandi nú þegar hafa þrír listar boðað framboð en það eru Eyjalistinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Fyrir Heimaey. Svo gæti farið að framboðum til bæjarstjórnar fjölgi því Flokkur fólksins hefur verið að skoða þann möguleika að bjóða fram í Vestmannaeyjum. Þetta staðfesti Georg Eiður Arnarson varaþingmaður flokksins í samtali við Eyjafréttir. […]

Sjö ferðir á dag frá 1. mars

Frá og með 1.mars næstkomandi verða sigldar 7 ferðir daglega til Landeyjahafnar. þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi: “Fyrirséð endalok heimsfaraldurs sem fylgt hefur rekstri Herjólfs ohf. í í 23 mánuði af þeim 34 sem félagið hefur verið í rekstri ásamt góðri rekstrarniðurstöðu síðasta árs eftir fjárhagslega endurskipulagningu í kjölfarið á nýjum þjónustusamningi við Vegagerðina, gera […]

Birna Berg Haraldsdóttir áfram hjá ÍBV

Birna Berg Haraldsdóttir hefur skrifað undir nýjan 2 ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Hún hefur verið í herbúðum ÍBV frá haustinu 2020, þegar hún kom frá Neckarsulmer í Þýskalandi. Hún hafði þá leikið í atvinnumennsku erlendis um nokkurra ára skeið. Birna varð fyrir því óláni að meiðast alvarlega í upphafi yfirstandandi tímabils, bikarleik ÍBV gegn Gróttu, […]

Best væri að gera Blátind sjófæran

Blátindur VE 21 og örlög hans voru til umræðu á fundi framkvæmda og hafnarráðs í gær þar var lagt fram mat á varðveislugildi Blátinds VE sem unnið var að undirlagi Minjastofnunar. Matið vann Helgi Máni Sigurðsson, formaður Sambands íslenskra sjóminjasafna og sérfræðingur á Borgarsögusafni Reykjavíkur. Í samantekt skýrslunar kemur fram: Blátindur er friðaður vegna aldurs. […]

Neytendastofa sektaði sex rekstraraðila í Vestmannaeyjum

9e22a5b72e94ee82ecb4a4782f854d59

Neytendastofa hefur sektað sex rekstraraðila í Vestmannaeyjum en þeir eru Flamingó, Heimaey, N1 Friðarhöfn, Póley, Salka og Tvisturinn fyrir að fara ekki að fyrirmælum stofnunarinnar um verðmerkingar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef neytendastofu. Í verðmerkingareftirliti er skoðað hvort söluvörur eru verðmerktar, hvar sem þær eru sýnilegar eða aðgengilegar neytendum. Einnig er skoðað hvort […]

152 í einangrun í Vestmannaeyjum

Í dag er 740 einstaklingur í einangrun vegna COVID-19 í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og hefur fækkað nokkuð síðustu daga. Í Vestmannaeyjum aftur á móti eru 152 einstaklingar í einangrun og hefur þeim fjölgað síðustu daga. En alls eru 127 í sóttkví í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.