Samkvæmt báðum helstu langtímaspám sem veðurfræðingar hér á landi miða við getur veðrið um verslunarmannahelgina farið á tvo mjög mismunandi vegu. Önnur spáin reiknar með lægð um allt land, norðvestan strekkingi og snjókomu til fjalla Norðurlands en hin spáin spáir engri lægð hér á landi á laugardagsmorgun.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur bendir á þetta á veðurvefnum Bliku og segir „nagandi óvissu“ ríkja um veðrið yfir verslunarmannahelgina í færslu sinni.
Ræðst af tilviljun
Langtímaspárnar sem Einar vísar til eru annars vegar ECMWF (Evrópska reiknimiðstöðin) og GFS (ameríska spáin) en þær sýna mjög ólíka útkomu fyrir veðrið um verslunarmannahelgina.
Samkvæmt ECMWF-spánni á að vera töluverð lægð yfir landinu með úrkomu á laugardagsmorguninn en GFS-spáin reiknar ekki með því. GFS-spáin reiknar með talsvert hlýrra veðri og spáir fyrir þrýstiflatneskju yfir landinu og hvorki úrkomu né köldu lofti úr norðri, gagnstætt við ECMWF-spána.
Einar segir það vera háð tilviljun, hvor spáin eigi eftir að rætast. Ljóst þykir þó með hvorri spánni flestir Íslendingar halda enda margir í ferðahug fyrir komandi helgi.
Þetta kemur fram á mbl.is
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst