Framtíðarsýn - tökum samtalið
ÍBV íþróttafélag hefur samþykkt framtíðarsýn félagsins sem byggir á heildstæðri uppbyggingu íþróttasvæðisins við Hásteinsvöll, þar sem mannvirki og starfsemi tengjast saman í eina heild. Áhersla er lögð á gervigras og flóðlýsingu, nýtt félagsheimili, handknattleikshöll og stækkun Herjólfshallar.
Hordur Orri An Bakgr

Aðsend grein

Hörður Orri Grettisson

Undanfarin misseri hefur verið lífleg umræða um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum. Það er fagnaðarefni, enda er hér um að ræða eitt af stóru hagsmunamálum samfélagsins.

Það er mikilvægt að slík uppbygging sé unnin með langtímahugsun. Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa áhrif á starfsemi og nýtingu mannvirkja til áratuga. Þess vegna telur ÍBV íþróttafélag eðlilegt að horft sé til heildarmyndarinnar og að mismunandi hugmyndir og sjónarmið fái að koma fram áður en farið er af stað í stór verkefni.

Margt af því sem þegar hefur verið gert er jákvætt og mikilvægt, en of oft hefur skort skýra framtíðarsýn og því hafa verkefni oftar en ekki verið unnin af minni metnaði en tilefni var til.

Skýr framtíðarsýn við Hásteinsvöll

ÍBV íþróttafélag hefur lagt vinnu í að móta og samþykkja framtíðarsýn félagsins á svæðinu við Hásteinsvöll. Sú vinna byggir á reynslu af daglegri starfsemi, þörfum iðkenda og þeirri þróun sem félagið sér til framtíðar. Niðurstaðan er skýr: það þarf að horfa á svæðið sem eina heild þar sem mismunandi mannvirki og starfsemi vinna saman. Áhersla er lögð á gervigras og flóðlýsingu, nýtt félagsheimili, handknattleikshöll og stækkun Herjólfshallar.

Framtíðin felur í sér að tengja betur saman núverandi aðstöðu, bæta umgjörð fyrir æfingar og keppni og skapa rými fyrir áframhaldandi vöxt íþróttastarfs í Vestmannaeyjum.

Hjartað í samfélaginu

Íþróttasvæðið við Hásteinsvöll er og á að vera hjartað í starfsemi ÍBV og gegnir lykilhlutverki í samfélaginu. Þar mætast skólastarf, frístundir, afreksíþróttir, barna og unglingastarf og almenn heilsuefling. Uppbygging mannvirkja þarf því að taka mið af þeirri breidd og ábyrgð sem felst í starfi félagsins.

Bæjarstjórnarkosningar framundan

Nú þegar styttist í bæjarstjórnarkosningar vill ÍBV íþróttafélag leggja sitt af mörkum til upplýstrar umræðu um framtíð íþróttamála í Vestmannaeyjum.

Við viljum því bjóða öllum framboðum til samtals við félagið, kynna þeim starfsemi ÍBV, umfang rekstrarins og þá framtíðarsýn sem unnið hefur verið að. Markmiðið er að skapa sameiginlegan skilning á mikilvægi íþróttastarfsins og að uppbygging íþróttamannvirkja verði tekin inn í stefnuskrár framboðanna með skýrum og markvissum hætti.

Við teljum að með opnu samtali og samvinnu sé hægt að leggja grunn að betri ákvörðunum til framtíðar, ákvörðunum sem byggja á þekkingu, heildarsýn og ábyrgð gagnvart samfélaginu.

 

Hörður Orri Grettisson

Höfundur er formaður ÍBV íþróttafélags.

Nýjustu fréttir

Ljósmyndakeppni fyrir börn og ungmenni
Íþróttamaður mánaðarins – Birna María
Þurfa Eyjamenn að taka málin í sínar hendur?
Framtíðarsýn – tökum samtalið
Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026
Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.