Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026
Vestmannaeyjar á nýju ári kallar SísÍ Högna þessa fallegu mynd sem hún tók 2024.

Vestmannaeyjar eru ekki fyrirferðarmiklar í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2026 og ekki  meðal þeirra sveitarfélaga sem njóta sérstakrar velvildar í nýju fjárlögunum. Helstu beinu framlög til Eyja eru hófleg svo vægt sé til orða tekið.

Samkvæmt fylgigögnum með frumvarpinu fær sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 3 milljónir króna í fjárfestingar. Um er að ræða stofnkostnað sem gæti farið í endurnýjun á aðstöðu eða stafrænar lausnir. Upphæð sem getur ekki skipt miklu í þjónustu eða starfsemi embættisins.

Á sama tíma vekur athygli að lögreglan í Vestmannaeyjum fær einungis um 100 þúsund krónur í sambærilegt fjárfestingarframlag. Til samanburðar fá önnur lögregluembætti á landinu frá tugum milljóna upp í yfir 200 milljónir króna. Þessi mikli munur hefur verið gagnrýndur í umsögnum um frumvarpið.

Í heild sinni eru Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlögum 2026. Engin stór innviðaverkefni og falla málefni Eyja fremur undir almennar aðgerðir ríkisins í samgöngum, heilbrigðisþjónustu og byggðamálum.

Þetta þýðir að áhersla ríkisins gagnvart Vestmannaeyjum felst fyrst og fremst í því að viðhalda núverandi þjónustu fremur en að ráðast í nýja uppbyggingu. Fyrir íbúa og atvinnulíf í Eyjum gæti það þýtt að áfram verði treyst á almennar landsbyggðaaðgerðir fremur en sértækar fjárfestingar sem taka mið af sérstöðu Eyjanna.

Eru sem sagt ekki í náðinni hjá núverandi ríkisstjórn.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.