Heimaey VE 1, nýtt og glæsilegt uppsjávarskip Ísfélagsins bíður nú þess að sigla inn í heimahöfn í fyrsta sinn. Áhöfnin á TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar flaug yfir skipið í gær og náði þessari ágætu mynd af skipinu á siglingu í átt að Vestmannaeyjum og er það klárlega fyrsta myndin af skipinu í íslenskri lögsögu.