Varnarmaðurinn sterki Matt Garner hefur ákveðið að spila áfram með ÍBV næsta sumar. Garner var með lausan samning og höfðu nokkur lið í úrvalsdeild falast eftir kröftum þessa sterka bakvarðar en hann skrifaði undir þriggja ára samning við ÍBV. Matt Nicholas Paul Garner, eins og hann heitir fullu nafni, kom fyrst til landsins sumarið 2004 þegar hann var lánaður frá enska félaginu Crewe til ÍBV. Garner sneri aftur 2006 og hefur verið hjá Eyjaliðinu síðan. Garner lék mjög vel með ÍBV í sumar, var að margra mati besti leikmaður liðsins og klárlega einn af betri vinstri bakvörðum úrvalsdeildarinnar. Af framansögðu er óhætt að segja að Garner sé mikill fengur fyrir ÍBV. Leikmaðurinn á að baki 183 leiki með ÍBV í Íslandsmóti og bikar en í þessum leikjum hefur hann skorað fjögur mörk.