Gestir í Herjólfsdal gætu orðið fjórtán þúsund í ár
29. júlí, 2010
Ríflega 11.600 farþegar eiga bókað far til Eyja vikuna og dagana fyrir þjóðhátíð en reikna má með að einhver hluti farþega með Herjólfi fyrri part viku hafi verið í dagsferðum. Ef farið er yfir flutningstölur frá síðustu þjóðhátíð þá komu 9.400 þjóðhátíðargestir með Herjólfi og flugi en nú má allt eins má reikna með um 12.000 manns ef allt er talið. Heimamenn í Dalnum eru líklega um tvö þúsund þannig að reikna má með í kringum 14.000 manna þjóðhátíð. Í fyrra voru gestir tæplega 10.000 þegar mest var.