Senn líður að árlegri Nótt safnanna. Að vanda stendur mikið til og fyrsti viðburðurinn byrjar meira að segja strax á fimmtudeginum 5. nóvember, en þá opna Berglind Kristjáns og Sigga T sýningu og markað í Eyjabúð. Formleg setning hátíðarinnar er á föstudeginum 6. nóvember kl. 17.00 í Stafkirkjunni og eftir það rekur hver viðburðurinn annað fram á sunnudagskvöld.