Kjósendur í Suðurkjördæmi hafa níu daga til að ákveða sig hverjir verða fyrir valinu þegar kemur að kosningum til Alþingis þann 27. apríl nk. Yfirkjörstjórn í Suðurkjördæmi hefur úrskurðað ellefu framboð gild. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefur staðið í nokkurn tíma og hefur farið vel af stað í Vestmannaeyjum.