Goslokahátíðin er um næstu helgi og að venju verður opið hús í Blíðukró á laugardagskvöldið. Eins og áður þá fá allir sem vilja að fara upp og taka lagið og eða fara með gamanmál. Nú þegar liggur fyrir að hljómsveitin Afrek muni taka lagið, einnig ætlar vinur minn Grétar Mar að reyna að mæta og segja sögur af hinum ýmsu ævintýrum sínum.