�??Krónan í Vestmannaeyjum stenst allan samanburð, það er bara þannig. Við tókum búðina í gegn fyrir tveimur árum og erum enn að vinna að endur bótum. �?að nýjasta er að nú eru komnir nýir innkaupavagnar. Búðin er björt og hreinleg og mér finnst þessi gagnrýni ósann gjörn.�??
�?etta sagði Kristinn Skúlason, rekstr arstjóri Krónunnar sem Kaupás á og rekur þegar ummæli Grétu Grétarsdóttur, kaupmanns í Eyjavík og formanns Félags kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum í síðasta tölublaði Eyjafrétta, voru borin undir hann. Kom fram hjá Grétu að verslun í Vestmannaeyjum á undir högg að sækja og kennir hún m.a. Krónunni um. �??�?ar held ég að Krónan sé ekki að hjálpa okkur því verslunin þeirra hér stenst engan veginn samanburð við lágvöruverslanir uppi á landi, sama hvort það eru Krónubúðir, Bónus eða Nettó. Fólk héðan sækir því í að kaupa í matinn uppi á landi og verslar þá annað í leiðinni. �?essu til staðfestingar vil ég benda á að tólf verslanir hafa lokað frá því Landeyjahöfn var tekin í gagnið. Eitthvað er um nýjar búðir en þær ná ekki að vega upp þær verslanir sem hafa hætt,�?? sagði Gréta.
5000 vörunúmer
�?essu vísar Kristinn algjörlega á bug og segir að verslun hjá þeim hafi aukist undanfarið. �?eir vilji þjóna Eyjamönnum vel og leggi sig fram við það. �??Við erum með ávaxta markað þar sem við bjóðum m.a. tíu ávexti á 390 krónur pokann. �?etta höfum við gert í eitt og hálft ár og úrvalið af grænmeti er gott. Við erum reyndar með lítið kjötborð en kjötborð engu að síður. Við eldum heitan mat og einnig erum við með grillaðan kjúkling alla daga, sem yfirleitt er ekki í boði í öðrum sambærilegum verslunum og er mjög vinsælt,�?? sagði Kristinn og hélt áfram samanburði við aðrar lágvörubúðir.
�??Við erum með 5000 vörunúmer í verslun okkar í Vestmannaeyjum eins og í öðrum minni verslunum Krónunnar. Er það 40 prósent fleiri vöruflokkar en okkar aðal samkeppnisaðili er með í sínum búðum. Vikulega gefum við út átta síðna blað með glæsilegum tilboðum sem eru mjög góð fyrir neytendur. Við erum því að standa okkur og gagnrýnin sem við fáum í Vestmannaeyjum á ekki rétt á sér.�??
�?ið gerið miklar kröfur
Um þau orð Grétu að verslun í Vestmannaeyjum fari minnkandi segir Kristinn að það eigi alls ekki við um Krónunna. �??Við erum með alveg viðunandi aukningu á milli ára sem væri ekki ef við værum ekki að standa okkur.�??
Kristinn segist skilja að Eyjamenn vilji fá risastóra Krónuverslun upp á 2500 fermetra en taka verði mið af því að íbúar eru rétt um 4200. �??�?ið gerið miklar kröfur og ekkert nema gott um það að segja. �?g vil benda á að það er sama verð í öllum verslunum okkar. Flutningskostnaður til Eyja er tveimur til þremur prósentum hærri en til annarra staða. �?rátt fyrir það erum við að bjóða allt það sama og meira til á sama verði og í öðrum verslunum okkar á stór Reykjavíkursvæðinu.�??
�?egar Kristinn var spurður um ástæðu þess að hvorki er ávaxtaeða kjötkælir í versluninni hér sagði hann að verslunin hér sé lítil. �??En hún býður upp á ótrúlegt úrval miðað við stærð. Kælar í verslunum Bónus eru þeirra lager en við getum boðið þér inn á lagerinn hjá okkur ef þú vilt,�?? sagði hann og hló.
Styrkja ÍBV
Krónan hefur reynt að ná sáttum við Eyjamenn að sögn Kristins. �?eir hafa styrkt ÍBV mjög myndarlega undanfarin ár. �?eir hafa þó fengið mismiklar skammir en hrósið er allt að koma og þá frá Eyjamönnum. �??Sem betur fer eru til viðskiptavinir sem hrósa okkur fyrir verslunina eins og hún er í dag. �?á má geta þess að í mælingu Íslensku Ánægju vogar Capacent, sem mælir ánægju viðskiptavina fyrirtækja, þá var Krónan hæst í sínum flokki og tók við verðlaunum fyrir fyrsta sæti í flokki matvöruverslana. Að halda því fram að Krónuverslunin okkar í Eyjum sé léleg er gömul grýla sem þarf að kveða niður. Sjálfur get ég ekki skilið hvað þið getið verið ósanngjörn því gagnrýnin á ekki rétt á sér,�?? sagði Kristinn að lokum.