Sæll Tói Í upphafi vil ég segja að ég deili algerlega með þér þeim tilfinningum sem þú segir að hellist stundum yfir þig þegar þú sérð umgengni um okkar fallegu Eyju. Undrun, hneyksli og já dálítið af reiði gera stundum vart við sig þegar maður horfir yfir eða gengur um hér á fallegsta landsvæði á Íslandi öllu og þar með í heiminum.