Leikfélag Vestmannaeyja fer heldur óvenjulega leið í því að finna búninga í nýjustu uppfærslu sína, söngleikinn Grease. Boðið verður upp á bíósýningu um helgina þar sem kvikmyndin ódauðlega Grease verður sýnd. Þeir sem gefa eða lána Leikfélaginu búninga, fá frítt á sýninguna og geta jafnfram unnið sér miða á frumsýningu Leikfélagsins á söngleiknum.