Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar hans í Konyaspor mættu stórliðinu Fenerbahce í 1. umferð tyrknesku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lokatölur urðu 3:2 en Fenerbahce var komið í 0:2 þegar aðeins rétt tæpur hálftími var liðinn af leiknum. En heimamenn tóku við sér á lokakaflanum og það var svo Eyjamaðurinn sem lagði upp sigurmarkið eftir að hafa unnið boltann af varnarmanni gestanna og vippað fyrir markið undir lok leiksins.