Bæjarstjórn Vestmannaeyja fjallaði um þóknun til fulltrúa í nefndum og ráðum á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. „Vægi nefndarsæta skal haldast óbreytt frá því sem verið hefur. Fyrir grunneiningu skal greitt 7229 kr.,“ segir í fundargerð. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ var grunneining áður 6083 krónur sem þýðir 20 prósenta hækkun.