Hópur Vestmannaeyinga er nú staddur í Götu í Færeyjum og hefur haldið tvenna tónleika á Eyjunum. Mikil stemning er í hópnum, sem telur rúmlega níutíu manns. Árni Johnsen alþingismaður er með hópnum og grípur í gítarinn þegar þannig ber undir. Hann segir mikla stemningu í hópnum og að ferðin hafi tekist mjög vel. Eingöngu eru sungin Eyjalög, mest lög Oddgeirs Kristjánssonar.