ÍBV og Grótta skildu jöfn í fyrstu umferð N1 deildar kvenna, 22:22 en liðin áttust við í Eyjum í dag. Jafnræði var með liðunum framan af en undir lok fyrri hálfleiks kom afleitur kafli hjá ÍBV sem varð til þess að Grótta náði fjögurra marka forystu fyrir leikhlé, 9:13.