„Enn sem komið er, er aðeins búið að velta upp mögulegum leiðum til hagræðingar. Þar er tvennt nefnt sem snýr að grunnskólanum. Annars vegar er möguleg skerðing á úthlutuðum kennslustundafjölda – og við vonum að sjálfsögðu að til hennar þurfi ekki að koma,“ sagði Fanney Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja, þegar hún var spurð að því hvort hún og kennarar við skólann hafi myndað sér skoðun á hagræðingartillögum fræðsluráðs sem sagt var frá í Fréttum í síðustu viku.