Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra segist stefna á að funda með starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum og bæjaryfirvöldum í næstu viku en fundarefnið er að sjálfsögðu yfirvofandi lokun skurðstofu stofnunarinnar. Kristján Þór var á beinni línu á DV.is og kom þetta m.a. fram í hans máli.