Ánægja með aðsóknina
Mikið af fólki var saman komið í Herjólfsdal í gærkvöldi. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum náði hámarki í Herjólfsdal þegar Magnús Kjartan Eyjólfsson stýrði Brekkusöng fyrir fulla brekku af gestum undir miðnætti í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar.

Fyrr um kvöldið höfðu Björgvin Halldórson, Sigga Beinteins, Stebbi Hilmars, Emmsjé Gauti, GDRN og Flóni sungið með Stuðlabandinu á kvöldvökunni. Eftir miðnætti stigu Birnir, Flóni, Tónhylur og Stuðlabandið á svið og spilað var fram undir morgun.

Þrátt fyrir að helgin hafi byrjað með miklum áskorunum þá virðist það hafa haft mun minni áhrif á aðsókn en talið var í aðdraganda helgarinnar og mikil ánægja með aðsókn á hátíðina í ár.

„Gærkvöldið var alveg stórkostlegt. Dalurinn skartaði sínu fegursta, brennan, blysin og brekkusöngurinn settu tóninn fyrir yndislegt kvöld,“ sagði Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar.

„Nú er frágangur hafinn og innan skamms fyllist dalurinn af sjálfboðaliðum og starfsfólki sem sinnir því. Svo hefst undirbúningur fyrir Þjóðhátíð 2026 í lok vikunnar.“

Nýjustu fréttir

Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.