Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fundaði með starfsmönnum Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum í dag. Talið barst meðal annars að samstarfi dvalarheimila og sjúkrahúsa. Kristján sagðist vera þeirrar skoðunar að heimaþjónusta sveitarfélaga og heimahjúkrun sé starfsemi sem beri að vinna að því að samþætta. „Sú öldrunarþjónusta sem hér er veitt er að nokkru leyti sambærileg þeirri þjónustu sem veitt er á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða annars staðar.“