Heimaey VE 1, nýja uppsjávarveiðiskipið sem Ísfélag Vestmannaeyja lét smíða fyrir sig í Chile, lagði af stað frá Asmar skipasmíðastöðinni um kl. 16 á sumardaginn fyrsta. Áætlaður sigingatími skipsins til Vestmannaeyja er rúmar 3 vikur. Það er því reiknað með að Heimaey verði í heimahöfn 12.-13. maí ef allt gengur að óskum.