Heimaey VE er þessa stundina að landa fyrsta loðnufarmi ársins á Þórshöfn. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Vigni Svafarssyni, vélstjóra um borð, er farmurinn 700 m3 af stórri og fallegri loðnu sem fékkst öll í einu hali. Fjöldi skipa er nú á loðnumiðunum sem eru norð austur af Langanesi.