Heimahöfn Eyjamanna á Facebook
Facebook-hópurinn Heimaklettur er fastur viðkomustaður vina Vestmannaeyja • Þar hefur verið miðlað miklum fróðleik um mannlíf í Eyjum fyrr og síðar
20. júlí, 2024
Ólafur Guðmundsson stofnaði hópinn Heimaklett á Facebook og fylgist daglega með umræðunni.

Hópurinn Heimaklettur á Facebook telur nú tæplega 13.500 meðlimi eða rétt þrefalda íbúatölu Vestmannaeyja.  Flestir sem eru í hópnum búa á Íslandi en þar er einnig fólk sem býr erlendis og sumt langt í burtu eins og í Ástralíu. Hópurinn var stofnaður 18. júlí 2012 af Ólafi Guðmundssyni, sem oftast er kallaður Óli. Hann hefur stjórnað síðunni ásamt bræðrum sínum þeim Halldóri Inga og Bjarna Ólafi. 

„Það má segja að hugmyndin að Heimakletti hafi kviknað í hópi nokkurra frændsystkina frá Bólstaðarhlíð. Við vorum spjalla um þetta ég og systurnar Dóra Björk og Gerða Jónsdætur Björnssonar og Rúnar Þórarinsson sonur Perlu Björnsdóttur. Þau vildu samt ekki koma nálægt þessu svo ég stofnaði hópinn einn míns liðs,” segir Óli. Hann er sonur hjónanna í Hákonarhúsi við Kirkjuveg 88, þeirra Guðmundar Hákonarsonar og Halldóru Kristínar Björnsdóttur frá Bólstaðarhlíð. Ólafur var fjórði í röð sjö systkina sem voru Björn Bjarnar (f. 1941, d. 2015), Halldór Ingi (f. 1946), Guðmundur (f. 1950), Ólafur (f. 1952), Eygló (f. 1956),  Bjarni Ólafur (f. 1963) og Þröstur (f. 1965). En hvers vegna nafnið Heimaklettur? 

 

Óli á yngri árum með kúrekahatt.

 

„Mér finnst Heimaklettur vera svo mikið Vestmannaeyjar. Það eru til félög sem heita Heimaklettur en það hefur ekkert truflað þennan hóp,” segir Óli. Hann byrjaði á að bjóða Facebook-vinum sínum í hópinn og svo fór boltinn að rúlla. Í hópnum voru 5.930 manns þann 7. mars 2015 og 28. mars 2019 voru þeir orðnir 10.000. Eðlilega hafa einhverjir horfið úr hópnum, aðallega yfir móðuna miklu, í tímans rás.  

Hópurinn er undir daglegu eftirliti 

„Mér fannst að þarna þyrfti að vera fólk frá Vestmannaeyjum, fólk sem á ættir að rekja til Eyja og aðrir velunnarar Vestmannaeyja,” segir Óli. „Ég setti inn alla sem voru vinir mínir á Facebook og bauð þeim að vera með. Þeir þurftu að óska eftir aðild því það þarf að samþykkja alla sem vilja vera í hópnum. Ég hef neitað gríðarlega mörgum um aðild. Það eru aðallega útlendingar, án nokkurra tengsla við Vestmannaeyjar, sem mig grunar að ætli sér að nota síðuna til að dreifa einhverjum óþverra. Ég fer inn á Heimaklett nokkrum sinnum á dag og fylgist með. Ef ég sé fólk gera eitthvað sem ég vil ekki sjá á síðunni þá hendi ég því út án viðvörunar.” 

Óli segir að það vanti fleira ungt fólk í hópinn Heimaklett en meiri hlutinn er eldra fólk. Hann bindur vonir við að yngra fólkið sláist í hópinn þegar það eldist, stofnar fjölskyldu og fer að eignast börn. Þá fer það að hugsa öðruvísi um lífið og tilveruna og fær áhuga á sögunni og ættfræðinni.  

Óli vissi hvernig umræður gátu þróast á Facebook og endað í tómri vitleysu. Hann ákvað því að setja einfaldar reglur fyrir hópinn Heimaklett. Þar má ræða allt innan almennra velsæmismarka nema trúarbrögð og pólitík. En hvað er mest rætt? 

Vinsælt að fá upplýsingar um gamlar myndir 

„Fólk er mikið að spjalla um ljósmyndir, stundum eldgamlar, sem koma inn og svo er fólk stundum að spyrja um tiltekin hús eða einstaklinga og þá koma svör frá öðrum í hópnum. Áki Heinz Haraldsson, sem starfaði lengi hjá Vestmannaeyjabæ, er mikill fróðleiksbanki og kemur með mikið af upplýsingum þarna inn. Hann virðist vita allt um húsin í bænum og íbúana og er ótrúlega glöggur á fólk sem hefur búið í Eyjum. Ég hef ekki tölu á öllum myndunum sem eru á Heimakletti en þær eru orðnar mjög margar,” segir Óli.  

Hann nefnir að Ljósmyndasafn Vestmannaeyja hafi nýtt Heimaklett til að afla upplýsinga um fólk á gömlum myndum, m.a. úr safni Óskars Björgvinssonar ljósmyndara sem lengi rak ljósmyndastofu í Vestmannaeyjum. Óskar tók m.a. myndir af fermingarbörnum sem nú eru orðin harðfullorðið fólk og þarf að nafngreina til að varðveita heimildina. Halldór B. Halldórsson myndasmiður hefur líka verið mjög duglegur að setja inn nýjar myndir.  

 

Óli Þröstur Mamma Bjössi Eygló Pabbi Ingi Daddi og Gummi
Fjölskyldan 1965. Aftasta röð f.v.: Björn Bjarnar Guðmundsson, Halldór Ingi Guðmundsson. Miðröð f.v.: Ólafur Guðmundsson, Halldóra Kristín Björnsdóttir, Guðmundur Hákonarson. Fremsta röð f.v.: Þröstur Guðmundsson, Eygló Guðmundsdóttir og Bjarni Ólafur Guðmundsson.  Ljósmynd/Óskar Björgvinsson

 

„Það er gríðarlega mikill fróðleikur samansafnaður á Heimakletti. Ef menn tækju það saman væri hægt að gera góðan doðrant með öllum þeim fróðleik og myndum sem ná allt aftur á 19. öld,” segir Óli. Elsta myndin á síðunni er þó ekki ljósmynd heldur teikning eftir enskan listamann sem heimsótti Eyjarnar á 19. öld. Frummyndin mun vera til á Byggðasafni Vestmannaeyja að því er Óli veit best.  

Margir hafa birt myndir af götum og húsum á svæðinu sem fór undir hraun í eldgosinu 1973. Svo safnast inn upplýsingar um hvað þessi eða hin gatan hét og hverjir bjuggu í hverju húsi í þessari veröld sem var en er nú horfin. „Það verður gaman að sjá hvað kemur undan hrauninu ef því verður mokað burt næst miðbænum. Sjálfsagt eru húsin ónýt, bæði kramin og soðin eftir hraunið en Eyjamenn ættu að fá þarna gott byggingarland,” segir Óli.  

Fór snemma að vinna í fiski 

Óli bjó í Vestmannaeyjum í 30 ár, það er frá fæðingu 1952 og til 1982 að hann flutti upp á land. Hann fór snemma að vinna með skóla og á sumrin eins og tíðkaðist í Eyjum. Að lokinni skólagöngu fór hann að vinna í Vinnslustöðinni. Var þar m.a. verkstjóri og vélgæslumaður í vélflökuninni. „Það vantaði ekkert upp á að það var nóg að gera. Ég byrjaði áður en tölvuvæðingin hófst og allar skýrslur voru handskrifaðar. Mig rámar þó í að ég hafi verið kominn með einhverja tölvu undir það síðasta,” segir Ólafur.  

Ólafur átti húsið Sólheimatungu við Brekastíg 14 og bjó þar. Við hliðina bjó Sigmúnd Jóhannsson teiknari og uppfinningamaður. Ólafur eignaðist allar bækurnar með teikningum Sigmúnds og þurfti ekkert að suða til að fá áritun listamannsins í bækurnar. „Hann var þakklátur fyrir gott nábýli þarna við Brekastíginn þótt stundum væri spiluð hávær tónlist. Það kom fyrir eftir böll að ég setti út hátalara og spilaði góða tónlist,” segir Óli.

 

Óli að stjórna Vinnslustöðvarslúttinu.

 

Einlægur aðdáandi Rolling Stones 

Á þeim árum sem Óli var unglingur skiptust Eyjamenn gjarnan í tvær fylkingar, Þórara og Týrara eftir því hvort íþróttafélagið þeir studdu. „Ég var alltaf Þórari,” segir Óli ákveðið. Unga fólkið skiptist líka í fylkingar eftir því hvort The Beatles eða The Rolling Stones voru í meira uppáhaldi. Ríkisútvarpið, eina íslenska útvarpsstöðin, spilaði stundum dægurlög en í Eyjum var líka hægt að hlusta á Radio Luxembourg og sjóræningjastöðina Radio Caroline þar sem nýjustu dægurlögin voru spiluð allan sólarhringinn. Sigurbergur Hávarðsson útvarpsvirki, Bebbi, seldi nýjustu plöturnar í verslun sinni við Skólaveginn. Þar voru nýjustu plöturnar rifnar út þegar krakkarnir fengu útborgað á föstudögum.  

„Rolling Stones voru í uppáhaldi hjá mér, eru enn og verða alltaf. Það er enginn spurning,” segir Óli. „Bibbi hans Valla Snæ (Friðbjörn Ólafur Valtýsson) var ókrýndur konungur Rolling Stones aðdáenda í Eyjum. Guðmundur bróðir var og er líka Stónsari auk margra fleiri.” Aðspurður segir Óli að hann hafi aldrei farið á tónleika með Rolling Stones og yfirleitt ekki á neina tónleika nema Eyjatónleikana sem Bjarni Ólafur bróðir hans hefur staðið fyrir með miklum myndarskap um árabil. Óli hefur þurft að sleppa tónleikaferðum síðustu tvö ár vegna þess að höfuðið þolir ekki lengur háværa tónlist. 

 

Bítlahárið, eða Rolling Stones greiðslan, var í tísku á unglingsárum Óla.

 

„Ég var að vinna í Kassagerðinni í Reykjavík þegar gosið byrjaði 23. janúar 1973 því það hafði ekkert verið að gera í Eyjum. Fjölskyldan kom upp á land. Ég fór svo með pabba til Eyja til að sækja búslóðina að Kirkjuvegi 88, þar sem við áttum heima. Það kom vörubíll og áttum við að setja búslóðina á pallinn. Pabbi sætti sig ekki við það og vildi fá gám. Það hafðist og þegar við fengum gáminn og við vorum búnir að pakka öllu saman passaði að taka glugga úr á efri hæðinni og taka dótið þar út. Vikurinn var orðinn svona þykkur.  

Það var mötuneyti í Gagnfræðaskólanum. Einu sinni var ég að koma úr mat og rafmagnið var farið. Það sást ekki neitt í myrkrinu þegar ég labbaði niður brekkuna, ekki ein einasta týra. Svartur vikurinn var yfir öllu og það heyrðist heldur ekki neitt. Þetta var mjög undarleg tilfinning. Ég fór svo að vinna í hreinsuninni um haustið við að moka vikrinum úr bænum. Eftir hana fór ég aftur í Vinnslustöðina.” 

Óli varð á endanum þreyttur á að vinna í fiski, enda var mikið vinnuálag og oft langir vinnudagar. Hann ákvað að breyta til og flytja til Reykjavíkur 1982. „Ég fór að vinna í varahlutaverslun B&L og það gekk þrumuvel. Svo fór ég að vinna við bílapartasölu sem Guðmundur bróðir minn átti. Hann flutti til Spánar með fjölskylduna árið 2000 og ég reyndi að leita að heilsunni í kjallaranum hjá partasölunni, en fann hana ekki þar. Ég var að hætta daglegri vinnu 2002 vegna heilsubrests.”  

Átti mikið vínilplötusafn 

Óli safnaði lengi vínilplötum en ákvað svo að láta Val stjúpson sinn fá plötusafnið og henti græjunum og plötuspilaranum sem var orðinn óttalegur ræfill eftir mikla notkun. Tónlistaráhuginn var þó ekki þar með horfinn.  

„Ég fékk aftur plötuspilara og magnara og er aðeins byrjaður að hlusta aftur á tónlist. Ég fór aftur að safna vínilplötum og er búinn að yfirfæra þær allar á flakkara og eins DVD diska og geisladiska (CD) og eins allar plöturnar hans Dadda bróður (Bjarna Ólafs). Þetta eru um 120.000 lög en ég er voðalega lélegur að hlusta,” segir Óli. Honum þykir gott að hafa það verkefni að vakta umræðuna á Heimakletti á hverjum degi. Eins er hann duglegur að heimsækja vefinn heimaslod.is og lesa allan þann fróðleik sem þar er að finna. Óla er því líkt farið og mörgum öðrum brottfluttum Eyjamönnum að hugurinn leitar daglega á heimaslóðirnar.  

 Þessi grein er úr blaði Eyjafrétta – Guðni Einarsson.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst