Karlalið ÍBV situr í öðru sæti Pepsídeildarinnar í knattspyrnu þegar Íslandsmótið er hálfnað en fyrir mótið áttu fæstir von á því að liðið yrði í þessari stöðu. Knattspyrnuvefurinn Fótbolti.net gerir upp fyrri umferðina í dag en vefurinn valdi Heimi Hallgrímsson, þjálfara ÍBV þjálfara fyrri umferðarinnar. Þá var enski bakvörðurinn James Hurst valinn besti ungi leikmaðurinn en fjórir leikmenn ÍBV eru svo í liði fyrri umferðarinnar og á ekkert lið jafn marga leikmenn í liðinu.