Það er hálf ótrúlegt að horfa upp á allt þetta sem er að gerast með Herjólf. Stöðugt bilar meira og meira um borð og þetta nýjasta, sem skeði á laugardaginn. Ekki bara að það bilaði önnur vélin og það þurfti að fá viðgerðarmenn um borð til að vinna að viðgerðinni á ferð, heldur bilaði líka hin vélin og á tímabili var Herjólfur á reki úti fyrir suðurströnd Íslands, einhverri hættulegustu siglingaleið við Ísland. Þetta er allt saman hálf ótrúlegt og fær merkilega litla umfjöllun í landsblöðunum, fyrir utan það að enn heyrist lítið í þessum svokölluðu þingmönnum eyjamanna.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst