Hermann Hreiðarsson og knattspyrnudeild ÍBV hafa komist að samkomulagi um að Hermann taki að sér þjálfun karlaliðs félagsins í knattspyrnu. Samningur þess efnis liggur fyrir og verður undirritaður á næstu dögum en samningurinn gildi út tímabilið 2014. Hermann þarf ekki að kynna fyrir íslenskum knattspyrnuáhugamönnum en ÍBV verður fyrsta liðið sem þessi fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins, þjálfar.