ÍBV leikur í Evrópukeppnini í kvöld eins og flestir vita. Eyjafréttir höfðu samband við Gunnar Már Guðmundsson, leikmann ÍBV og var hann ásamt öðrum leikmönnum klár í slaginn gegn Rauðu Stjörnunni. „Við erum vel stemmdir fyrir leikinn. Það er ákveðin brekka framundan að þurfa að vinna upp tveggja marka forskot þeirra, við mætum hóflega bjartsýnir til leiks, sagði Gunnar Már.“