Uppistands- og skemmtifræðslusýningin Hvað ef? verður sýnd í Félagsheimilinu við Heiðarveg í dag, þriðjudaginn 22. maí. Það er Íslandsbanki sem býður Eyjamönnum á sýninguna og er aðgangur ókeypis. Í sýningunni er fjallað um mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál.