Húni II siglir í höfn í Vestmannaeyjum kl. 16.30 í dag mánudaginn 8. júlí. Fólk er hvatt til að fjölmenna og fagna þeim á Skansinum. Þeir sem hafa tök á að sigla á móti þeim eru hvattir til að gera svo. Áhöfnin á Húna II er er hljómsveit skipuð tónlistarmönnunum Jónasi Sig, Láru Rúnars, Mugison, Ómari Guðjónssyni, Guðna Finnssyni og Arnari Gíslasyni.