ÍBV hefur ákveðið að lána handknattleiksmarkvörðinn Stephen Nielsen til franska 1.deildar liðsins Aix til loka þessa árs. �?etta hefur mbl.is samkvæmt heimildum og er samkomulag í höfn á milli ÍBV og Stephens annarsvegar og Aix hinsvegar.
Mbl.is greinir frá.
Stephen leikur sinn síðasta leik að sinni með ÍBV á sunnudaginn þegar ÍBV mætir Akureyri í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í 3. umferð Olís-deildar. Hann heldur síðan til Frakklands til liðs við nýja samherja á mánudagsmorguninn.
Forráðamenn Aix hafa leitað síðustu daga logandi ljósi að markvörðum eftir að báðir markverðir liðsins meiddust, þar á meðal Ole Erevik, landsliðsmarkvörður Norðmanna sem slasaðist á auga á dögunum. Höfðu forráðamenn félagsins m.a. samband við Eyjamenn um að fá Stephen að láni.
Samkomulagið milli ÍBV og Aix gildir til áramóta.
Aix er eitt af liðunum í frönsku 1.deildinni. Jón Heiðar Gunnarsson, leikmaður Aftureldingar, lék með liðinu um skeið fyrir fáeinum árum.
Kolbeinn Aron Ingibjargarson verður þar með aðalmarkvörður ÍBV næstu vikur og mánuði en honum til halds og trausts verður hinn efnilegi markvörður Andri Ísak Sigfússon sem er nýgenginn upp úr þriðja flokki.