Eyjastúlkur duttu í lukkupottinn í 8-liða úrslitum Visabikarkeppninnar en dregið var nú í hádeginum á höfuðstöðvum KSÍ. ÍBV, sem er eina 1. deildarliðið sem enn er í keppninni, fékk heimaleik gegn Haukum en Haukar eru í næst neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og möguleikar ÍBV líklega mestir gegn Hafnafjarðarliðunum tveimur, Haukum og FH sem bæði voru í pottinum en liðin tvö sitja í neðstu sætum úrvalsdeildarinnar. Leikirnir fara fram föstudaginn 9. júlí.