Ekki hefur enn verið hægt að mæla rafstrenginn eftir að bilun kom upp í dag sem olli því að rafmagnslaust varð í Vestmannaeyjabæ í um 20 mínútur. Eftir það hefur rafmagn verið flutt á öðrum af tveimur rafstrengjum, þeim eldri, á meðan ekkert er vitað hvort sá yngri, sem er þó ríflega 30 ára gamall, sé enn nothæfur. Auk þess eru díselvélar keyrðar til að sjá Eyjamönnum og fyrirtækjum innanbæjar fyrir rafmagni.