Heimsaflinn á árinu 2006 nam 92 milljónum tonna og minnkaði um 2,2 milljónir tonna frá árinu 2005 en þá var aflinn 94,2 milljón tonn. Kínverjar veiddu þjóða mest en Íslendingar eru í 16. sæti yfir mestu fiskveiðiþjóðir heims. Perúansjósa er sú fisktegund sem mest var veitt af í heiminum árið 2006, eða rúmar 7 milljónir tonna en það er um 7,6% af heimsaflanum. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri skýrslu Hagstofunnar.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst