Jón Gunnlaugur Viggósson mun taka við kvennaliði ÍBV í handbolta. Þetta er fullyrt á Sport.is en Svavar Vignisson hefur þjálfað liðið undanfarin ár. Jón Gunnlaugur þjálfaði FH í vetur, sem mætti einmitt ÍBV í 8-liða úrslitum. Samkvæmt heimildum Sport.is mun Jón Gunnlaugur skrifa undir samning við ÍBV í dag.