Ég heiti Sunna Guðlaugsdóttir og bý hér í Vestmannaeyjum. Ég er söngkona í hljómsveitinni Blind Bargain, sem kom einmitt fram á stóra sviði þjóðhátíðar á föstudagskvöldið kl. 20:30. Blind Bargain er Eyjaband – ef ég má taka mér það bessaleyfi að kalla mig Eyjamann – og samanstendur af fjórum strákum sem búið hafa hér alla ævi og svo mér. Blind Bargain fær enga styrki – reyndar misstum við nýverið styrk frá menningarráði, sem við höfum notað til að borga húsaleigu á æfingarhúsnæði sem við höfum til ráðstöfunar við Skildingaveg.