KFS tekur á móti Augnabliki í dag í toppleik B-riðils 4. deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli í þetta sinn, klukkan 14:00 en yfirleitt leikur KFS leiki sína á Helgafellsvelli. KFS hefur spilað einstaklega vel í sumar, hefur unnið 5 af 6 leikjunum í Íslandsmótinu og gert 1 jafntefli. Markatala liðsins er heldur ekkert slor en Eyjamenn hafa skorað 26 mörk í leikjunum 6 en aðeins fengið á sig 4.
Samkvæmt óstaðfestum fregnum stefnir allt í að Sigurvin �?lafsson leiki sinn fyrsta leik með KFS í sumar en Sigurvin lék á árum áður með ÍBV en hefur auk þess verið á mála hjá Stuttgart, KR, FH, Fram, Fylki, Gróttu og KV. �?á eru þeir Tryggvi Guðmundsson og Sverrir Garðarsson einnig að spila með liðinu og mun Tryggvi eflaust spila í dag eins og yfirleitt áður í sumar.